MistressesVilhjálmur Þór Ólafsson
Geðveikt skemmtilegir og vel gerðir þættir. Já ég verð bara að segja það frábært sjónvarp, fékk hann semi stífan svona 3 sinnum og skemmtilegur söguþráður, hvað get ég beðið um meira .Stöð eitt á fimmtudagskvöldum, ekki klikka á því.
SællVilhjálmur Þór Ólafsson
Sæll vefbóki, hér er ég komin aftur. Ættla mér að endurfæða bloggpennan sem hefur legið í dvala. Öll skrif verða mjög eðlileg og stíliseruð, hvergi út af sporum villst. Allt milli mín og þín, þín og alls annars. Hef einnig heitið að gera tvær til fjórar eðlilegar sögur á mánuði sem spretta af bjánalegri ljósmynd sem ég hef tekið sama dag. Vonandi verður eithvað fútt í essu, og eðlilegir þegnar þjóðfélagsins geta fundið dægrarstyttingu í.Keep it real
Haldið því eðlilegu elskurnar.
Lady LaufásvegurVilhjálmur Þór Ólafsson

Hún hefur háleitar hugmyndir um lífið og tilveruna, hæst ber að nefna kenninguna um "Hvarfið", en þar rökstyður hún fjandsamlega hegðun mannkynsins síðustu árhundruð með gíslatöku á Guð vors almáttugum. Þrettán brotnar sálr handan dauða blettsins(glatómt svæði í alheiminum) léku á skaparann og sögðust eiga uppskirft að hamingjunni, en hana þyrfti skaparinn að sækja á meinlausa plánetu rétt við jaðar dauða blettsins. Plánetan var bleik og gul og virtist hafa yfir stóru leyndarmáli að geyma, þannig að skaparinn sló til og hélt af stað. Plánetan reyndist svo versa tálsýn yfir svarthol sem sogaði hann í gríðarstóra dífllissu sem engin ratar, sér, eða veit hvar er.. Á meðan lifir manfólkið í synd og stjórnleysi og gerir hvað sem því dettur í hug. Í potti hennar leynist þó sannleikurinn að frelsun skaparans, en þolinmæði og þrautsegja er lykilatriðið í upgvötun sannleikans úr skilaboðunum. Hún spáir því þó að innan 388 sólstaðna verði hún komin með svarið. Við bíðum auðvitað spennt og sáum hvað hún nær að malla úr stæðsta potti Laufásvegar.
Hún samdi einnig eitt ljóð fyrir mig, um ástand þjóðarsálarinnar.Kulinn og köld með engin völd
Horfið draumabálið líkt og síðasta öld
Það er svo kallt
Kannski af því að ég hef brennt allar brýr að baki mér, svikið alla vini mína, hennt öllu sem hlýjar mér.
Fáklædd ein og yfirgefinn
lifi mitt lífsins ljúfa í eilífðardal kuldans.
En það mun hlýna
Þá verður kuldinn, einsemdin, vonleysið að fáfróðum fortíðardraugum.
Í mínum björtu framatíðaraugum
óttalaus í himneskum fjallarsal
nýja og betri tíma lifum
ólgum í takt og tifum.Ég er sögð köld og kulinnn
þjóðin lömuð og mulinn
Fokking kjaftæði
Ég er Ísdrottninginn.Merkileg daman á Laufásveginum, get ég sagt að hún hefur tendrað mitt lífsins ljúfa draumabál, sem ég vona að berist í landans brotnu sál.
This is the End my only friend the endVilhjálmur Þór Ólafsson
Er hættur að "Blogga" eða hættur að skrifa eithvað tilgangslaust bull um það hvað ég hef verið að gera, en ættla samt að halda í þetta vefsetur til að henda einstaka sinnum einhverju inn sem mér gæti þótt sniðugt eða til ýta undir einhverjar umræður hjá okkur fééls..... En ef þið viljið endilega komast í gott blogg eða góðar sögur þá myndi ég lesa prakkarinn.blog.is hann er með nefið á púlsinum... Kveð í biliVilhjálmur Óla
Í vondu skapiVilhjálmur Þór Ólafsson
Nei nei er ekkertí vondu skapi...Smá pistil hérna en það er að fara að koma helgi og elli og beggi ættla að kíkja í fjörðin, og mikið djöfulli verður nú gaman að sjá þá djöfla, ætlla að skemmta mér pínulítið smá og vonandi verður skálað mikið um helgina...
Kem með eithvað af viti svo eftir helgi og afsaka þetta glataða bloggleysi í manni...
Með greitt til vinstriVilhjálmur Þór Ólafsson
Djöfulli langt síðan seinast mín kæru.Heilmargt og mikið á daga mína drifið á meðan , má þar nefna nokkur góð fyllerí,Seli fél kíkti í heimsókn í fjörðin, nokkur próf og aðrar álíka áskoranir sem hafa bara tekist ágætlega, opna vikan í skólanum og svo árshátíðinn sem var alveg drullugóð... taumlaus gleði sem fylgdi í kjölfar hennar..
Herðu setjum bara inn nokkrar myndir áður en við höldum áfram...
Í einhverju krakkaparty hjá Jón Freyr bróðir Dadda drill, helvítis fjör samt ,og myndin helvíti góð...Hvað er einkennandi fyrir hornfirskt skemmtanalíf sem sést glögglega hér á myndinni :) ??
En ég var víst búin að lofa að ljúga víst einhverjum hözzl zögum af mér eftir helgina, stend við það og er ánægður með að segja frá því að ég tók sönkonuna ægifögru úr Bermúda með mér heim og drillaði og drillaði.
Það var einnig gert grín af mér á árshátíðinni fyrir að vera furðulegur gæji sem bloggar um furðulega hluti og var það soldið fyndið, hrói lék mig og klæddi sig í ullarpeysu og setti teyju á eyrað á sér, settist í stól við undirspil eins væmnasta lags sem coldplay hefur gefið út og þóttist pikka á lykklaborð á meðan einhver las upp fyrir aftan í míkrafón einhvern djúpan pælingar pistil úr einhverju bloggi hjá mér,
fékk alveg svakalegan kjánahroll en samt fyndið. Sem minnir mig á það að ég á enþá eftir að smetta einum framan í Hróa einn daginn;)
Herðu segjum það gott í bili og vonandi verð ég nú aðeins "aktívari" við henda færslum hérna inn..
Og nokkrar myndir sem ég fæ lánaðar frá bloggurum hérna á Hornafirði,sem og myndin sem er fyrir ofan
Einn tveir og viðstöðvarlaust ómyndarlegur;) þar verður líka að fylgja...fáránlegur svipur..
Haha var búin að gleyma að Olli mætti á ball, hló mig máttlausan þegar ég man eftir að ég dansaði við hann í svona korter...
Að lokum ein frá mér í tilefni þess að ég er búin að virkja flickr síðuna mína, og svo er það bara að vera duglegur að smella og uploada myndum..Aðeins meira mál að læra á nýju vélina en ég hélt og vill það ósjaldan gerast að myndirnar mistakist, en æfinginn skapar amatörinn..www.flickr.com/photos/vilhjalmurthor -- Bið að Heilsa

In my life i love them all....Vilhjálmur Þór Ólafsson
Bítlarnir voru ágætis textahöfundar..Leti er orð vikunnar, eða einbeitingarleysi, get bara ekki gert neitt lengur en í korter í senn þá vil ég fara að gera eithvað annað,
t.d æfi mig á gítar í korter ( er helvíti fúll að vera ekki orðin jafn góður og Gilmorinn eftir 10 min æfingu )
þá fer ég tölvuna en fer að leiðast það eftir smá stund,
kíki svo kannski á tv - ið og fletti í gegnum 10.000 stöðvar á 5 mínútum og ekki er það gaman til lengdar,
nú svo kíki ég kannski í bók en er farinn að hugsa um hvernig ég reyndi að vera fyndinn fyrir kynþroska eftir 1bls, eða einhverjir álíka endalausir hugarórar.
Læra, já þetta einbeitingarleysi bitnar sérstaklega á lærdómnum og fæ ég þá alltaf þessa tilfinningu að ég sé latasti maður í heimi ef ég nenni ekki að lesa einhverjar 150 bls fyrir eithvað próf, eins gott að ég fylgist nú vel með í tímum annars væri ég fhaaaakkkked....
En svo get ég nú sem betur fer alltaf lagst niður og hlustað á góða tónlist í lengri tíma, og andað rólega, helvítis stressbolti hann Vélhjálmur....
En skítt með það ég er hress og kátur og fullt af uppbyggilegum hlutum að gerast hjá manni þrátt fyrir smá eirðarleysi now and then..þyrfti bara að ná mérí konu með stórar og mikklar mjaðmir svo hún geti alið mér mörg falleg og heilbrigð börn, myndi nú samt ekki gráta það ef einhver þeirra myndi verða til eyrnanna eins og pabbi sinn...
Ættla svo að bæta mér það upp að haf misst af hnakkasamkomunni á Sander kleinenberg sem var núna um helgina, með því að skella mér á alvöru töffaratóna þegar Pendulum kemur til landsins í maí, lengi lifi trommur og bassar...
Þessi færsla er farin að fjalla alltof mikið um mig þannig að ég ættla enda hana á því að segja ykkur frá einum skemmtilegum ósið sem góðvinur minn gunnar örn marteins hefur vanið sig á... Ef ósiður kallast, en hann hefur allavega alveg svakalega gaman af því að vera með ökuleiðindi, sem útskýrist í ofnotkun á flautunni á bílnum eða þá að hægja bílin nánast niður í kyrrstöðu fyrir framan bíl sem er á biðskyldu, eða bara öll tækifæri sem gefast til að svala þessari fíkn hans,
svo kippist hann allur til við svona uppátæki og er hinn ánægðasti eins og honum hafi áunnist eithvað merkilegt...En algjör eðal tappi þarna á ferðinni og öll eigum við einhverja ósiði..
´Mig er svo einnig farið að hlakka gífurlega til opinnar viku daganna 19-24 fb ( þar sem ég skráði mig í ljósmyndahóp) og fæ þar frítt ljósmyndanámskeið í leiðinni hjá honum Sigga mar, Árshátíðin hjá Fas svo á laugardeginum 24 feb og dansleikur á eftir með hljómsveitinni Bermúda, veit svosem ekkert um hana en Raggi frændi sagði mér að þetta væri þétt band, og að sönkonan væri alger drottning, það eitt og sér ætti að duga til að halda uppi stuðinu. Það er semsagt bara næst á dagskrá og vonandi getur maður logið einhverjum hözzl sögum af sér eftir það..
Ekki væri það nú leiðinlegt ef að Axel bragi félagi myndi nú svo fara að kíkja í heimsókn í fjörðin en hann er akkurat búin að vera eithvað að gæla við það undanfarið, myndi segja það sama um appelsýnugulu skyrtuna en frétti að það væri jafn líklegt og að rekast á ella jack í mokkajakka á sirkus...
Uss svo rétt svona í lokin, sá einhver þáttin um þarna ofurheilann sem getur bara gert hvað sem er við tölur og getur lýst tölunni pí sem einhverju landslagsmálverki og þannig fer hann reyndar að öllum stærðfræðilegum útreikningum, hann reiknar semsagt ekki tölurnar heldur hefur hann tilfinningu fyrir þeim og skynjar þær í litum og formum, fjöllum hæðum og hólum...Í einni prófrauninni var hann akkurat sendur til Íslands til að læra íslensku á einni viku, og kom svo í beina útsendingu í kastljós eftir þessa 7 daga, ekki frá því að hann talaði betri íslensku en margir þeir slavar sem hafa búið hér um árabil...?? ótrúlegur gæji.. svipað dæmi og með alla tónlistar séní - a þeir sjá fyrir sér ákveðna liti og form þegar þeir heyra ákveðnar nótur og tóna..
Stærðfræði folinn Daniel Tammet...

En nóg komið af bulli þetta sunnudagskvöld, blikkkall broskall flippkall...
p.s mæli eindregið með því að allir vinir mínir og þeir sem hafa áhuga á því að spara sér krónurnar færi viðskiptin sín yfir í símafyrirtækið SKO því að þá get ég hringt frítt í þá og öfugt, allir í SKO bilaður lúxus..
Er búin að vera að hlusta mikið á hana Björk mína undanfarið (Pluto) geheheikt lag, svo er Amon Tobin og nýji diskurinn með Air ofarlega á Playlistanum...Kosskall
You have got a famous last nameVilhjálmur Þór Ólafsson
Frábær helgi í bænum í tvítugs afmæli hjá meistara Ellzn, vinalegar kveðjur til allra sem spenduðu þessari helgi með mér..Er veikur í dag og er búin að hlusta mikið á Noruh Jones ,nýja diskinn hennar NOT TOO LATE og mér finnst hann gegjaður ,tónlist að mínu skapi.. En Mars volta og Kravtwerk eru líka búnir að vera að hitta í mark seinustu daga..Mikið að gera í skúlen og er maður bara að bagsast við það að lenda ekki eftir á neinstaðar. Ég kem með einhverja djúpa og hressa færslu næst....I am you, and what i see is me.Vilhjálmur Þór Ólafsson
Byrjum á smá kvikmyndagagnrýni...Little miss sunshine- geðveik góð mynd, mannleg, skemmtileg og fyndinn. Steve Carrel að sanna sig..
Children of men - drullugóð mynd og alveg viðbjóðslega subbuleg á köflum, fyrir utan það að vera grámygluleg allan tíman en það skapaði rótaða stemningu.
The Forgotten - Var nú einhverntíman búin að sjá hana en horfði á hana fyrir stuttu og fannst hún vera mögnuð, geðveik atriðin þegar fólkið skýst allt í einu með geðveikum krafti út í geimin( semsagt þegar geimverurnar taka það), bæði bregður manni geggjað og fær gæsahúð í leiðinni....Julianne Moore nýja uppáhalds leikonan mín sem fer með aðalhlutverkið í þessari mynd....
Signs - horfði á hana aftur fyrir stuttu, var svona 10 sinnum betri en mig minnti, sprelluð filma...
An unconvinient truth - Heimildarmyndin með Al gore um global warming, sló mig rosalega og sérstaklega þar sem ég var mjög áhyggjufullur fyrir um þessi mál og fræði, fór eiginlega bara í vont skap eftir hana, en góð mynd samt sem áður.
Seinasta helgi var nokkuð þétt, tók þátt í Fas mótinu í fótbalta þar sem okkar lið vann , enda við engu öðru að búast. Svo kíkti ég á Ragga frænda og Sindra á Sverrisstaði, drakk mig vel fullann þar og skemmti mér vel, og æddi svo hingað og þangað út um allan bæ eftir gott stopp á Sverris.
Þorrablót næsta laugardag, er enþá ekki viss hvort maður fari á allan pakkan þó svo að kosti nú ekki nema fimmara á það, en maður fer allavega á ballið þar sem Buff mun troða upp, rífa kjaft við gamla kalla og heilla einhverjar ömmur upp upp úr skónum, hef alltaf fallið vel í kramið hjá ömmunum, bara ef kvenfólk undir sjötugt myndu sína mér eins mikkla athygli, úfff hugsið ykkur... En er farinn að lýsa mér á ensku fyrir finnana sem eru í samvinnuverkefni með okkur fas í einhverskonar frumkvöðlafræðis verkefni...Sjitt var líka að komast í svo góða tónlist að ég á bara ekki til orð, rokk, d&b og eithvað vel útsett stjörnupopp.
Med venlig hilsen- William the third...
Hérna erum við strákarnir alveg kampakátir eftir sigurinn á mótinu.......
Awesome dude... Awesome !!! kv: NavarroVilhjálmur Þór Ólafsson
Blizim.....Hjáhjá jááááááá....Skólinn byrjaður hérna fyrir austan, er í 22 ein og þar af eru 3 einingar i fjarnámi í frönsku 303 þar sem að franska er ekki kennd hérna í FAS.. Þetta byrjar allt bara nokkuð vel og er ég í nokkrum skemmtilegum áföngum, t.d frumkvöðlafræði 173 og sögu 203 þar sem ég fæ loksins að sitja undir leiðsögn hins víðfræga Sigurgeirs kennara, hef bara ágætis tilfinningu fyrir þessu , og ekkert annað að gera en að skriðtæklka þetta og hafa gaman af.... Keypti mér myndavél í dag , eða lét senda hana með póstkröfu, Olympus e-500 dobble zoom kit varð fyrir valinu og fylgir þeim pakka tvær linsur og 1 gb minniskort...
Úfff hlakka til að rústa þessum fallega grip


Hvað fleira, já reyndi að komast að í tónskólan í gítarnám en það var aðeins 15 manna biðlisti í það helvíti, en reddaði þessu með því að koma mér að í 10 tíma gítar kúrs hjá Sigga Palla sem byrjar núna á fimmtudaginn, það ætti að duga fínt til að byrja með..
Fer svo að styttast í það að maður fari að ráðast á lóðin í sporthöllinni til að koma sér hulk-að form, einnig verður maður að sprikkla með dynamo, ættla svo að sjá til í lok þessa mánaðar hvort ég treysti mér til þess að kíkja á æfingar hjá meistaraflokk, en það kemur nú bara allt saman í ljós....
Var að skoða gömul myndaalbúm um helgina þar sem maður hafði nú bara ekkert betra að gera, en rakst á nokkrar skemmtilegar myndir.. Muna ekki allir eftir grímuböllunum í gamladaga?? jú held það nú , en það voru akkurat nokkrar myndir til af mér í mismunandi gervum og búningum, ekkert merkilegt við það, en ég tók eftir því að ég var aldrei í batman búning eða súperman búning eða eithvað svona töff...Fyrsta myndin sem ég rakst á þá var mamma búin að koma mér í dulargervi Indverja ?? já og svo aðra þar sem hún saumaði á mig gervi Einars Áskells helvítit flott samt, jú og svo þegar ég var 4 ára þá var ég í hlutverki útúr masssaðans kraftakalls og gekk um með spítulóð sem klædd voru í álpappír, hef ábyggilega blekkt marga jafnaldra mína með þeirri sjónblekkingu, en svo var eithvað meira sniðugt.. En rúsínan í pulsuendanum er sá búningur sem ég hef ákveðið að skella hérna uppá síðuna, hún bítur nú samt aðeins í testósterónið sem flæðir um mig allan.. En ég hef ekkert að fela og þar sem ég gaf svo fáar jólagjafir lýt ég bara á þetta sem síðbúna jólagjöf handa þeim 10 tryggu lesendum mínum sem eiga hér leið hjá...
Er hérna klæddur upp sem ballerína, helvíti svalur bara:) ... Og Frissi bró einhver skylminga hero...

Er hérna klæddur upp sem ballerína, helvíti svalur bara:) ... Og Frissi bró einhver skylminga hero...

Fór nú svo að spurja mömmu hvernig það hafi atvikast að ég hafi endað í gervi ballerínu í staðin fyrir hulk eða supermann, sjóræningja eða hvað sem menn klæddu sig uppí, þá sagði hún mér að henni hafi dottið þetta í hug og að ég hafi allatf verið til í að gera allt sem hún stakk uppá... En það er nú bara gaman að þessu , og man ég ekki eftir því að hafa verið strítt eða neitt af því tagi... Minnir að Reynir frændi hafi unnið þetta ár , þar sem hann var búin að klæða sig upp sem skúringarkonu og gekk með fötu og skrúbb um allt grímuballið og gerði hreint fyrir ballerínuna... Hugsa að næsta mynd sem ég set inn af mér verði af mér allblóðugum drulluskítugum með tvær berar gellurí fanginu... En er farinn að horfa til veðurs...Blizim...